Niðurstaða Fjármálaeftirlitsins um hæfi Kviku banka

New Post Public Reply Private Reply Replies (0) Message Board
News Desk 2022
52
Niðurstaða Fjármálaeftirlitsins um hæfi Kviku banka hf. til að fara með virkan eignarhlut í GAMMA Capital Management hf.

Í dag, 17. janúar 2019, tilkynnti Fjármálaeftirlitið Kviku banka hf. (Kvika) að það hefði metið Kviku hæfan til að fara með yfir 50% eignarhlut í GAMMA Capital Management hf. (GAMMA), sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002.

Hluthafafundur Kviku, haldinn þann 18. desember 2018, hafði áður samþykkt kaup Kviku á öllu hlutafé í GAMMA, með þeim skilmálum sem fram koma í tilkynningu Kviku um kaupsamning um hlutaféð, sem birt var 19. nóvember 2018 í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Kaupin eru enn háð fyrirvörum um samþykki Samkeppniseftirlitsins og breska Fjármálaeftirlitsins (e. Financial Conduct Authority).