Eik fasteignafélag hf.: Árshlutauppgjör fyrir fyrstu sex

New Post Public Reply Private Reply Replies (0) Message Board
News
35
Eik fasteignafélag hf.: Árshlutauppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2024

Árshlutareikningur Eikar fasteignafélags hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2024 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins þann 15. ágúst 2024.

Helstu niðurstöður árshlutareikningsins eru:

  • Rekstrartekjur námu 5.527 m.kr.
    • Þar af námu leigutekjur 4.809 m.kr.
  • EBITDA nam 3.519 m.kr.
  • Heildarhagnaður nam 2.798 m.kr.
  • Handbært fé frá rekstri nam 1.762 m.kr.
  • Bókfært virði fjárfestingareigna nam 138.297 m.kr.
  • Bókfært virði eigna til eigin nota nam 5.931 m.kr.
  • Matsbreyting fjárfestingareigna var 4.084 m.kr.
  • Handbært fé nam 782 m.kr.
  • Vaxtaberandi skuldir námu 81.027 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall nam 33,4%.
  • Hagnaður á hlut var 0,82 kr.
  • Virðisútleiguhlutfall var 93,6%.
  • Vegnir verðtryggðir vextir fjármögnunar námu 3,39%.
  • Vegnir óverðtryggðir vextir fjármögnunar námu 6,6%.

Meðfylgjandi er árshlutaskýrsla sem inniheldur árshlutareikning vegna fyrstu sex mánaða ársins 2024 ásamt ítarlegri upplýsingum um rekstur félagsins en fram koma í tilkynningunni.

Rekstur félagsins

Þrátt fyrir að rekstrarhagnaður félagsins sé lítillega undir áætlun, sem fyrst og fremst er tilkomið  vegna lakari nýtingar Hótels 1919 og tilfallandi virðisrýrnunar viðskiptakrafna, gengur útleigan betur en áætlað var sem og uppbygging eigna í þróun. Rekstrartekjur félagsins á fyrstu sex mánuðum ársins 2024 námu 5.527 m.kr. Þar af voru leigutekjur 4.809 m.kr. Rekstrarkostnaður nam 1.958 m.kr. og virðisrýrnun viðskiptakrafna 50 m.kr.

Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 3.519 samanborið við 3.827 á sama tímabili árið áður. Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 3.497 m.kr. og heildarhagnaður samstæðunnar á fyrstu sex mánuðum ársins 2024 nam 2.798 m.kr.

NOI hlutfall (þ.e. rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir sem hlutfall af leigutekjum) nam 69,9% á fyrstu sex mánuðum ársins 2024 samanborið við 78,4% fyrir sama tímabil 2023. NOI hlutfall á fyrri helmingi ársins 2023 var óvenju hátt m.a. vegna einskiptisliða er sneru að jákvæðri virðisrýrnun viðskiptakrafna. Leiðrétt fyrir þeirri færslu var NOI hlutfall á fyrri helmingi ársins 2023 74,4%.

Fjárfestingareignir félagsins eru metnar á gangvirði í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) og stuðst er m.a. við núvirt framtíðarsjóðstreymi einstakra eigna. Breytingar á gangvirði eru færðar undir matsbreytingu fjárfestingareigna sem var um 4.084 m.kr. á fyrstu sex mánuðum ársins. Stærstu liðirnir til hækkunar á virði fjárfestingareigna eru verðbólga, nýir samningar og lægri ávöxtunarkrafa á arðsemi eigin fjár. Stærstu liðir til lækkunar er hækkun á fjármagnskjörum og hækkun á fasteignamati.

Efnahagur félagsins

Heildareignir félagsins námu 147.753 m.kr. þann 30. júní 2024. Þar af eru fjárfestingareignir að virði 138.297 m.kr. sem skiptast í fjárfestingareignir í útleigu að fjárhæð 127.440 m.kr., fjárfestingareignir í þróun 4.543 m.kr., byggingarheimildir og lóðir 3.666 m.kr., fyrirframgreidd gatnagerðargjöld 13 m.kr og leigueignir að fjárhæð 2.636 m.kr. Eignir til eigin nota námu 5.931 m.kr. og fasteignir í þróun 1.089 m.kr. Eigið fé félagsins nam 49.281 m.kr. í lok tímabilsins og var eiginfjárhlutfall 33,4%. Á aðalfundi félagsins þann 11. apríl 2024 var samþykkt að greiða út arð til hluthafa vegna rekstrarársins 2023 að fjárhæð 2.540 m.kr. og var hann greiddur þann 30. apríl 2024 til hluthafa.

Heildarskuldir félagsins námu 98.472 m.kr. þann 30. júní 2024. Þar af voru vaxtaberandi skuldir 81.027 m.kr. og tekjuskattsskuldbinding 13.203 m.kr. Veðhlutfall félagsins, þ.e. nettó staða vaxtaberandi skulda á móti virði fasteigna, byggingarheimilda og lóða var 56,4%. Á fyrstu sex mánuðum ársins endurfjármagnaði félagið um 8.800 m.kr. af óverðtryggðum lánum á breytilegum vöxtum og tók í staðinn verðtryggð lán á breytilegum vöxtum. Félagið tók einnig tvö ný verðtryggð bankalán á breytilegum vöxtum að fjárhæð samtals 1.350 m.kr. til 18 mánaða. Þá gaf félagið út skuldabréf að fjárhæð 1.300 m.kr. á 3,75% föstum verðtryggðum vöxtum með lokagjalddaga 2049, en uppgreiðsluheimild eftir fjögur ár.

Í byrjun júlí 2024 gaf félagið út nýjan skuldabréfaflokk EIK 050734, að fjárhæð 5.000 m.kr. á 3,95% verðtryggðum vöxtum. Samhliða því voru veltilán félagsins greidd niður og verður hluti útgáfunnar nýttur í að greiða upp EIK 24 1 sem er á lokagjalddaga í september næstkomandi og er 3.000 m.kr. að stærð. Þar með hefur félagið lokið endurfjármögnun á þeim skuldum sem voru með lokagjalddaga á árinu.

Eignasafn félagsins

Félagið keypti leikskóla í byggingu við Réttarheiði 45 í Hveragerði og er áætlað að hann verði tekinn í notkun seinnihluta ársins. Byggingin er viðbygging við núverandi leikskóla í Hveragerði og samið hefur verið við Hveragerðisbæ til langs tíma um leigu á leikskólanum.

Félagið fékk til baka úr leigu í lok júní, Rauðarárstíg 27, þar sem Utanríkisráðuneytið var til húsa og hefur eignin í framhaldi verið sett í sölu.

Virðisútleiguhlutfall

Virðisútleiguhlutfall félagsins var 93,6% við lok tímabilsins og lækkar um 0,7% frá áramótum.

Í upphafi árs gerði félagið ráð fyrir að virðisútleiguhlutfall í lok annars ársfjórðungs yrði 92,5% og því hefur útleiga gengið betur en gert var ráð fyrir. Þar að auki hefur félagið leigt út rúmlega þriðjung af þeim þróunarfermetrum sem félagið áætlar að verði orðnir tekjuberandi í lok árs 2025. Þar sem þessir fermetrar voru flokkaðir sem þróunarfermetrar hafa þeir lítil áhrif á virðisútleiguhlutfallið.

Horfur

Félagið hefur uppfært horfur fyrir árið 2024 og væntir þess að EBITDA ársins verði á bilinu 7.280 – 7.580 m.kr. á föstu verðlagi út árið miðað við vísitölu neysluverðs til verðtryggingar í september 2024.

Uppfærðar horfur taka m.a. mið af væntingum Radisson Hotel Group um lægri afkomu Hótels 1919 en vonir stóðu til í upphafi árs.

Þrátt fyrir að handbært fé frá rekstri sé nokkuð lægra en fyrir sama tímabil í fyrra þá áætlar félagið að handbært fé frá rekstri fyrir árið 2024 verði hærri en árið 2023.

Frelsi til athafna

Stjórn Regins hf. (nú Heimar hf.) tilkynnti þann 29. apríl sl. um afturköllun á samrunatilkynningu þess til Samkeppniseftirlitsins vegna valfrjáls yfirtökutilboðs til hluthafa Eikar sem lagt var fram þann 6. júlí 2023. Jafnframt samþykkti fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands afturköllun á tilboðinu þann 10. maí 2024. Félagið hefur við afturköllun tilboðsins frelsi til athafna og skoðar nú tækifæri í eignasafni sínu, frekari útfærslur á fjármagnsskipan þess og möguleika á fjölgun tekjustofna.

Rafrænn kynningarfundur Rafrænn kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 16. ágúst 2024 klukkan 8:30. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.

Skráning á fundinn fer fram hér:

https://vimeo.com/event/4505368/cf0b257ea0

Eftir skráningu fá þátttakendur tölvupóst með nánari upplýsingum.

Markaðsaðilar geta sent spurningar fyrir eða á fundinum á netfangið fjarfestatengsl@eik.is. Stjórnendur hvetja markaðsaðila að senda inn spurningar fyrir fundinn til að hægt sé að undirbúa svör, sé þess þörf. Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.

Fjárhagsdagatal

Stefnt er að birtingu árshluta- og ársuppgjöra á neðangreindum dagsetningum:

Árshlutauppgjör 3. ársfjórðungs         31. október 2024 Ársuppgjör 2024                                 13. febrúar 2025

Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaða.

Nánari upplýsingar veita:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is , s. 590-2200 Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is , s. 820-8980

Viðhengi

Scroll down for more posts ▼

Top 10 Most Recent News Articles

BD Appoints Bagnato as Peripheral Intervention Head

Updated Category News Views 49

A New Captain for BD's Peripheral Ship Time to pay attention, folks. Franklin Lakes just sent an interesting ripple through their workforce headlines, announcing Bridget Bagnato taking the reins as Worldwide President of BD's Peripheral Intervention division. Come November 16, this medical tech veteran, who's clocked over 27 years with BD, is set to start steering their...

Continue Reading
Southern Home Services Grows Houston Base With New Buy

Updated Category News Views 82

Cracking Open the Houston Market If you're sniffing out a story in the HVAC and plumbing sector, look no further than Southern Home Services' latest acquisition. They've just scooped up Vanderford Air and Plumbing in League City, Texas, and this ain't small potatoes, folks. This move marks Southern's second foothold in the Houston DMA, giving them some real skin in the...

Continue Reading
DeFi Technologies Preps Investors for Q3 Insight Session

Updated Category News Views 57

DeFi Technologies Sets the Stage for Q3 Results When it comes to stirring the pot, DeFi Technologies sure knows how to do it. They're not just flipping the calendar; they're gearing up to lay bare their Q3 2026 financials. The big show? It happens live on November 13, 2026, at 11:00 a.m. EST. Get your coffee ready because you don't want to miss this shareholder call where...

Continue Reading
UN Forum Unleashes LatAm CEO Coalition for Action

Updated Category News Views 89

Latin America Takes Center Stage When the UN turns its spotlight on a region, you know there's something afoot. Right in Montevideo, Uruguay, the United Nations Global Compact gathered a hefty crowd of over 300 leaders from diverse backgrounds—think business, finance, government, and academia. What they were brewing wasn’t just talk; it was about driving real change...

Continue Reading
Lone Star's Debrief IQ: Revamping Military Training

Updated Category News Views 20

A Milestone for Military Pilot Training In the grand scheme of military pilot training, Debrief IQ from Lone Star Analysis is making waves. Apparently, they're shaving off a hefty 35 minutes of the grind instructors typically endure post-training sessions. I bet the flight schools are letting out a collective sigh of relief. Years of Frustration Handled by AI So, what's...

Continue Reading
Wolfbox K7 Pro: Night Driving's New Guardian

Updated Category News Views 30

Driving Under the Stars with the K7 Pro Let's be real here, night driving can give anyone a touch of the heebie-jeebies. Crunch time on the road when the lights dim and the stakes rise. Enter the Wolfbox K7 Pro, tailormade for these nocturnal journeys. This dash cam's no slouch—it packs a punch with true-blue 4K recording front and back. We're talking sharp images, even...

Continue Reading
D2 Intelligence Unveils AI Tools at FinTech Fest

Updated Category News Views 94

Wenge AI's D2 Intelligence Hits the FinTech Stage If there's one thing Wenge AI’s subsidiary, D2 Intelligence, knows how to do, it's making a splash in the artificial intelligence arena. At this year's Hong Kong FinTech Week, they pulled out all the stops, rolling out a suite of AI innovations designed to reshape decision-making and risk assessment across industries....

Continue Reading
NOVOS Trial Boosts Vascular Health: A New Horizon

Updated Category News Views 72

Watch Out, Aging: NOVOS Is Making Waves Aging ain't what it used to be, and longevity's becoming the golden chalice of the wellness world. Surrounded by a sea of questionably effective supplements, NOVOS, a biotech firm focused on prolonging the healthy years of life, steps up with some hard evidence. Their STAMINA trial, published in the European Heart Journal Open,...

Continue Reading
Atlas-SSI Expands Grip in Water Control Space

Updated Category News Views 214

Atlas-SSI Makes Waves with Linita Acquisition Here's the kind of news that makes an old market hound sit up and take notice. Atlas-SSI, the big cheese in North America for water management solutions, has gone and snagged Linita Design & Manufacturing. Why's this worth talking about? Linita isn't just any player—they've been crafting custom-engineered hydro-mechanical...

Continue Reading
Autohome's 2026 Q3 Results: Revenue Dips But Optimism Glows

Updated Category News Views 83

A Rollercoaster Quarter for Autohome Diving right into Autohome's latest financial results, and boy, it's not the cheeriest news we've heard. For Q3 2026, the famed online auto hub's net revenue is down to RMB1,315.0 million from RMB1,778.1 million a year prior. That's a hefty slide in any trader's book. More so, net income attributable to the company tumbled from...

Continue Reading

Top 5 Most Recently Viewed Articles

Hand & Stone Welcomes New CEO to Drive Growth

Updated Category News Views 7

Shaking Things Up in the Spa Industry Some say it’s the same old song with a different cover when a new CEO comes in, but I reckon Carrie Walsh might just bring a fresh beat to Hand & Stone Massage and Facial Spa’s symphony. It’s a different ballgame now for the spa industry, and Walsh isn’t just another name on the letterhead—it’s a signal that Hand & Stone...

Continue Reading
T-RIZE and Republic Revolutionize Tokenization with Vision 60

Updated Category News Views 520

Introduction to Vision 60 Initiative T-RIZE Group is stepping into the world of real estate tokenization with their new initiative, Vision 60 by Ste-Rose. This ambitious project involves a $24.2 million investment into a 60-unit, energy-efficient residential development. Vision 60 is just one facet of T-RIZE's extensive plan to remodel the way institutional investors...

Continue Reading
Cabot Corporation's Innovative Conductive Carbon Recognized Globally

Updated Category News Views 196

Cabot Corporation’s LITX® 95F Conductive Carbon Shines at Global Expo BOSTON — Cabot Corporation (NYSE: CBT) proudly announced that its groundbreaking LITX® 95F conductive carbon has been selected as one of the “Top 10 Exhibits” in a prestigious global trade show. This significant accolade was presented at the China International Import Expo (CIIE), renowned for...

Continue Reading
Jonathan Meyer Rejoins Sheppard Mullin to Lead National Security

Updated Category News Views 222

So here’s the lowdown: Jonathan Meyer made waves by rejoining Sheppard Mullin back in early 2024. This guy's not just any lawyer—he spent some serious time as the General Counsel of the U.S. Department of Homeland Security (DHS) during Biden's tenure. Now, he's rolling back into the firm's D.C. office to steer their National Security team like a ship captain through...

Continue Reading
Experience the Vibrant Return of New York BagelFest 2025

Updated Category News Views 249

Exciting Highlights of New York BagelFest 2025 The anticipation is building for the New York BagelFest, the premier celebration of bagels and bakery culture. This year, it returns with new features aimed at connecting bakers, media, and fans, celebrating the beloved bagel as the iconic carb it represents. What to Expect at the Festival Set to take place at Citi Field,...

Continue Reading