Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu VEDS2 17 01 hefur útgefandi ákveðið að nýta sér heimild til að greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins á næsta vaxtagjalddaga sem er þann 17. september næstkomandi. Útgefandi mun því mánudaginn 17. september 2018 greiða alls 200.000.000,- króna inn á höfuðstól bréfsins. Greiðslan er tilkomin vegna afborgana og uppgreiðslu á skuldabréfum í eigu útgefanda síðustu vikur og mánuði.


Nánari upplýsingar veitir Júpiter rekstrarfélag hf. sem er rekstraraðili útgefanda í síma 522 0010.