Fagfjárfestasjóðurinn Landsbréf - BÚS I, í rekstri Landsbréfa hf., efnir til útboðs á skuldabréfum 7. september næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í flokknum BUS 56 fyrir allt að 5.000 milljónir króna að nafnvirði.

Skuldabréfin verða seld á fastri ávöxtunarkröfu 3,55%. Áður hafa verið gefin út skuldabréf í BUS 56 að nafnvirði 5.480.000.000 kr. og hafa þau verið tekin til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Landsbankinn hf. sér um viðskiptavakt á eftirmarkaði með skuldabréfunum.

Í kjölfar birtingar uppfærðrar útgáfulýsingar og skráningarlýsingar er áætlað að greiðslu- og uppgjörsdagur útboðsins verði í viku 39-40. Sótt verður um að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hf. þann sama dag. Kauphöll mun tilkynna um fyrirhugaða stækkun í kauphöll með eins dags fyrirvara.

Tilgangur útgáfunnar er fjármögnun nýrra fjárfestinga Búseta hsf. og eftir atvikum endurfjármögnun á hluta núverandi skulda Búseta hsf.

Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu og fjárfestar skulu skila tilboðum fyrir klukkan 16:00, föstudaginn 7. september 2018 á netfangið: verdbrefamidlun@landsbankinn.is

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Skráningarlýsingin, útgáfulýsingin og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds skuldabréfaflokks eru birt á vefsíðu sjóðsins; https://www.landsbref.is/skrad-skuldabref .

Nánari upplýsingar veita:

Landsbréf hf., sem er rekstraraðili útgefenda í síma 410-2500

Helgi Þ. Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa, rekstrarfélags fagfjárfestasjóðsins Landsbréf - BÚS I, í síma 410 2500 eða helgi.arason@landsbref.is

Gunnar S. Tryggvason s: 410 6709 og í gegnum netfang Markaðsviðskipta Landsbankans vegna útboðsins:  verdbrefamidlun@landsbankinn.is